Skref 1
Sækja um námsheimild á https://island.is/fyrsta-okuskirteini-namsheimild
(fara með passamynd til sýslumanns)
Skref 2
Fyrsti ökutíminn — Finna ökukennara sem fer í gegnum ferlið með þér.
Gott að mæta í einn ökutíma áður en Ökuskóli 1 hefst.
Skref 3
Ökuskóli 1
Finna Ökuskóla, ökuneminn fer á sínum hraða gegnum bóklega þáttinn (fjarnám)
Skref 4
Æfingaakstur
Hefst þegar Ökuskóli 1 er lokið og að lágmarki 10 ökutímar hafa verið teknir.
Ökukennari metur þegar ökunemi er tilbúin til æfingaaksturs undir leiðsögn leiðbeinanda.
Skref 5
Ökuskóli 2
Gott er að taka ökuskóla tvö tveimur mánuðum fyrir bóklegaprófið.
Skref 6
Ökuskóli 3: https://www.okuskoli3.is
Byggir á verklegri kennslu og fyrirlestrum
Staðsetning: Álfhella 23 í Hafnarfirði.
Ekkert próf.
Ökunemi þarf að… Hafa lokið Ökuskóla 1. Hafa lokið 10 ökutímum.
Skref 7
Bóklegtpróf: https://www.frumherji.is/okuprofasvid/
Ökunemi getur skráð sig tveimur mánuðum fyrir 17 ára afmæli sitt í bóklegaprófið.
Skref 8
Verklegt Ökupróf
https://island.is/handbaekur/handbok-oekuprofa/proflysingar-verkleg-prof
Ökunemi getur tekið verklega ökuprófið 2 vikum fyrir 17 ára afmælið sitt.